Vandasamt hefur verð að nota Facebook í allan morgun. Þetta kemur fram á vefnum Mashable sem fjallar fyrst og fremst um samfélagsmiðla..

Meðal annars hefur verið erfitt að skrifa stöðufærslur, athugasemdir við stöðufærslur eða birta myndir. Þá hefur jafnframt verið vandasamt að láta sér lika við stöðufærslur eða myndir.

Facebook hefur ekkert gefið upp hvað veldur biluninni.