Samningaviðræðum Samtaka atvinnulífsins við VR og Flóabandalagið var slitið í dag hjá ríkissáttasemjara. Í tilkynningu frá SA segir að staðan í kjaradeilunum sé nú mjög flókin og fáir góðir kostir í boði. Vandséð sé að hægt sé að forða víðtækum verkföllum verkalýðshreyfingarinnar.

„Afleiðingar þeirra verða alvarlegar fyrir bæði launafólk, fyrirtæki og þjóðarhag. Verði ítrustu kröfur verkalýðsfélaganna knúnar fram með verkföllum verða afleiðingarnar hins vegar enn verri. Verðtryggðar skuldir heimila og fyrirtækja munu hækka mikið, vextir hækka og störfum fækka. Við slíkum búsifjum má Ísland vart við um þessar mundir en verkalýðsforystan hefur valið að fara þá leið. Þessi niðurstaða veldur Samtökum atvinnulífsins miklum vonbrigðum,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir jafnframt að SA hafi verið tilbúin að koma til móts við kröfur verkslýðsfélaganna um verulega hækkun lægstu launa og umtalsverða hækkun dagvinnulauna fyrir þriggja ára samning, eða sem nemur um 24% hækkun. Þessu boði hafi verkslýðsfélögin hafnað í dag án þess að leggja fram raunhæfar lausnir um nýjan kjarasamning sem tryggi launafólki aukinn kaupmátt, viðhaldi lágri verðbólgu og jafnvægi í efnahagslífinu.