Hlutfall vanskila af útlánum í lok 1. ársfjórðungs 2008 er 0,5% samanborið við 0,4% í árslok 2007. Í lok 1. ársfjórðungs 2007 var hlutfallið 0,6%.

Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins( FME) en stofnunin hefur tekið saman tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við lok mars 2008 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.

Talnaefnið nær til vanskila sem staðið hafa lengur en 1 mánuð. Um er að ræða brúttó vanskil, þ.e. ekki hafa verið dregnar frá fjárhæðir sem lagðar hafa verið til hliðar sem sérstakar afskriftir. Sýnd er þróun vanskila frá árslokum 2000. Vanskilaupplýsingarnar sýna tölur fyrir innlánsstofnanir án dótturfélaga þeirra.

Á yfirlitinu eru ennfremur sýnd vanskilahlutföll með annars vegar eins árs tímatöf og hins vegar tveggja ára tímatöf og er þannig tekið tillit til áhrifa mikillar útlánaaukningar síðustu misseri á hlutfallstölurnar.

Vanskilahlutföllin mæld á síðastnefndu mælikvarðana eru 0,9% og 1,1% af útlánum samanborið við 0,6 og 0,9% í lok árs 2007 og hafa því aukist á 1. ársfjórðungi 2008.

Vanskilin eru samkvæmt framansögðu að aukast á ný eftir nær samfellda lækkun frá seinni hluta árs 2002.

„Athuga ber að útlánaaukningin á undanförnum misserum kann að koma fram í auknum vanskilum síðar. Hafa ber í huga að þátttaka innlánsstofnana í fasteignalánum frá og með seinni hluta ársins 2004 kann að hafa haft áhrif á þróun vanskila sem sýnd eru á yfirlitinu, einkum vanskilahlutfall einstaklinga,“ segir á vef FME.

Vanskil fyrirtækja

Vanskilahlutfall fyrirtækja er 0,5% í lok 1. ársfjórðungs 2008 samanborið við rúmlega 0,3% í árslok 2007. Í lok 1. ársfjórðungs 2007 var hlutfallið 0,6%.

Vanskilahlutfall fyrirtækja miðað við eins árs tímatöf er 0,9% samanborið við 0,5% í árslok 2007. Vanskilahlutfallið miðað við 2ja ára tímatöf er 1,1% samanborið við tæplega 0,8% í árslok 2007.

Vanskil fyrirtækja hafa vaxið lítillega á fyrsta árfjórðungi þessa árs en eru enn svipuð og verið hefur síðastliðin tvö ár sem sýndu mun lægri vanskilahlutföll en voru á tímabilinu 2001 til 2004

Vanskil einstaklinga

Vanskilahlutfall einstaklinga er tæplega 0,8% í lok 1. ársfjórðungs 2008 samanborið við 0,7% í árslok 2007. Í lok 1. ársfjórðungs 2007 var hlutfallið rúmlega 0,8%.

Vanskilahlutföll einstaklinga miðað við eins og tveggja ára tímatöf eru 1,0% og 1,1% samanborið við 0,8 og 1,1% í árslok 2007.

Vanskil einstaklinga hafa vaxið lítillega á ársfjórðungnum en eru enn með lægsta móti samanborið við tölur fyrri ára.   Hafa verður í huga við lestur yfirlitanna að í árslok hvers árs eru færð út endanlega afskrifuð útlán sem koma til lækkunar á brúttó vanskilafjárhæðum og hafa þannig áhrif á vanskil í lok 4. ársfjórðungs og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.