Hlutfall vanskila af útlánum innlánsstofnanna hefur lækkað úr tæplega 0,7 í lok 3. ársfjórðungs 2006 í rúmlega 0,5 í árslok 2006, en í Í árslok 2005 var hlutfallið 0,6%, segir í tilkynningu Fjármálaeftirlitsins. Vanskilahlutfallið hefur ekki verið lægra á síðustu sex árum.

Vanskilahlutfall fyrirtækja lækkaði úr 0,6% í lok 3. ársfjórðungs 2006 í tæplega 0,5% í árslok 2006, en í árslok 2005 var hlutfallið 0,5%.

Ragnar Hafliðason, aðstoðarforstjóri FME segir vanskil útlána fyrirtækja og einstaklinga hafa verið með lægsta móti í lok árs 2006. ,,Ein skýring á lágum vanskilum er aukin hlutdeild lána með veði í íbúðarhúsnæði á síðustu misserum en reynslan sýnir að þeim fylgja minni vanskil og tapshætta. Að því leytinu er útlánaáhætta banka og sparisjóða dreifðari en áður var?, segir Ragnar.