Samkvæmt yfirliti sem Fjármálaeftirlitið (FME) hefur tekið saman sést að hlutfall vanskila af útlánum er óbreytt eða 0,6% í lok 1. ársfjórðungs 2006 frá því sem það var í árslok 2005. Þessi vanskilahlutföll eru þau lægstu sem verið hafa á því rúmlega 5 ára tímabili sem yfirlitið nær yfir.

Í lok 1. ársfjórðungs 2005 var hlutfallið 1,5%. Á yfirlitinu eru ennfremur sýnd vanskilahlutföll með annars vegar eins árs tímatöf og hins vegar tveggja ára tímatöf og er þannig tekið tillit til áhrifa mikillar útlánaaukningar síðustu misseri á hlutfallstölurnar. Vanskilahlutföllin mæld á síðastnefndu mælikvarðana eru 1,1% og 1,6% af útlánum samanborið við 1,0% og 1,5% í lok árs 2005 og hafa því aukist lítillega á 1. ársfjórðungi 2006. Athuga ber að útlánaaukningin á undanförnum misserum kann að koma fram í auknum vanskilum síðar. Hafa ber í huga að þátttaka innlánsstofnana í fasteignalánum frá og með seinni hluta ársins 2004 kann að hafa haft áhrif á þróun vanskila sem sýnd er á yfirlitinu, einkum vanskilahlutfall einstaklinga.

Vanskilahlutfall fyrirtækja er óbreytt eða 0,5% í lok 1. ársfjórðungs 2006 frá því sem það var í árslok 2005. Í lok 1. ársfjórðungs 2005 var hlutfallið 1,3%. Vanskilahlutfall fyrirtækja miðað við eins árs tímatöf er 0,9% samanborið við 0,8% í árslok 2005. Vanskilahlutfallið miðað við 2ja ára tímatöf er tæplega 1,3% sem er lítið eitt hærra en það var í árslok 2005 þegar það var tæplega 1,1%. Þessi hlutföll eru þau lægstu sem verið hafa á undanförnum þremur til fjórum árum.

Vanskilahlutfall einstaklinga er óbreytt eða 1,0% í lok 1. ársfjórðungs 2006 frá því sem það var í árslok 2005. Í lok 1. ársfjórðungs 2005 var hlutfallið 2,1%. Vanskilahlutföll einstaklinga miðað við eins og tveggja ára tímatöf eru 1,6% og 3,0% eða svipuð og í árslok 2005 þegar hlutföllin voru 1,7% og 2,9%. Þessi hlutföll eru þau lægstu sem verið hafa á undanförnum þremur til fjórum árum.

Hafa verður í huga við lestur yfirlitanna að í árslok hvers árs eru færð út endanlega afskrifuð útlán sem koma til lækkunar á brúttó vanskilafjárhæðum og hafa þannig áhrif á vanskil í lok 4. ársfjórðungs og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.

Í þessu yfirliti Fjármálaeftirlitsins eru bornar saman tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við lok mars 2006 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan. Talnaefnið nær til vanskila sem staðið hafa lengur en 1 mánuð. Um er að ræða brúttó vanskil, þ.e. ekki hafa verið dregnar frá fjárhæðir sem lagðar hafa verið til hliðar sem sérstakar afskriftir. Sýnd er þróun vanskila frá árslokum 2000. Vanskilaupplýsingarnar sýna tölur fyrir innlánsstofnanir án dótturfélaga þeirra.