Íbúðalánasjóður hefur gefið út mánaðarskýrslu sina fyrir september á þessu ári. Þar kemur fram að í mánuðinum hafi 2.742 heimili verið í vanskilum við sjóðinn að meðtöldum lánum í frystingu. Á sama tíma í fyrra var sambærilegur fjöldi heimila 4.230 og fer heimilum í vanskilum því jafnt og þétt fækkandi hjá sjóðnum.

Undirliggjandi lánavirði vanskila fer einnig minnkandi, en í september var hlutfall lánavirðis í vanskilum einstaklinga 9,64% af heildarlánum sjóðsins. Hlutfallið var 12,26% á sama tíma á síðasta ári.

Þá kemur fram í skýrslunni að 297 fullnustueignir hafi bæst í eignasafn Íbúðalánasjóðs frá áramótum. Hefur sjóðurinn á sama tíma selt 862 eignir, þar af 43 eignir í septembermánuði.

Lesa má mánaðarskýrslu sjóðsins fyrir september hér .