Yfirlit Fjármálaeftirlitsins sýnir að hlutfall vanskila af útlánum hefur lækkað úr 2,4% í lok 3. ársfjórðungs 2004 í 1,6% í árslok 2004. Í árslok 2003 var hlutfallið 3,1%. Vanskilahlutfallið hefur ekki verið lægra á síðustu 4 árum. Á yfirlitinu eru ennfremur sýnd vanskilahlutföll með annars vegar eins árs tímatöf og hins vegar tveggja ára tímatöf og er þannig tekið tillit til áhrifa mikillar útlánaaukningar síðustu misseri á hlutfallstölurnar.

Þetta kemur fram í tölum sem Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við árslok 2004 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan. Talnaefnið nær til vanskila sem staðið hafa lengur en 1 mánuð. Um er að ræða brúttó vanskil, þ.e. ekki hafa verið dregnar frá fjárhæðir sem lagðar hafa verið til hliðar sem sérstakar afskriftir. Sýnd er þróun vanskila frá árslokum 2000.

Vanskilaupplýsingarnar sýna tölur fyrir innlánsstofnanir án dótturfélaga þeirra. Vanskilahlutföllin mæld á síðastnefndu mælikvarðana eru 2,3% og tæplega 3,0% af útlánum og eru þau talsvert lægri en verið hafa á undanförnum tveimur til þremur árum sem útreikningarnir ná yfir. Athuga ber að útlánaaukningin á undanförnum misserum kann að koma fram í auknum vanskilum síðar. Hafa ber í huga að þátttaka innlánsstofnana í fasteignalánum á seinni hluta ársins 2004 kann að hafa haft áhrif á þróun vanskila sem sýnd er á yfirlitinu.

Vanskilahlutfall fyrirtækja lækkaði úr 1,9% í lok 3. ársfjórðungs 2004 í tæplega 1,3% í árslok 2004. Í árslok 2003 var hlutfallið 2,5%. Vanskilahlutföll fyrirtækja miðað við eins og tveggja ára tímatöf eru 1,8% og 2,35% og eru það mun lægri hlutföll en verið hefur á undanförnu 2ja til þriggja ára tímabili.

Vanskilahlutfall einstaklinga lækkaði úr 4,4% í lok 3. ársfjórðungs 2004 í 2,6% í árslok 2004. Í árslok 2003 var hlutfallið 5,5%. Vanskilahlutföll einstaklinga miðað við eins og tveggja ára tímatöf eru 4,5% og 4,8% og eru það mun lægri hlutföll en verið hefur á undanförnu 2ja til þriggja ára tímabili.

Hafa verður í huga við lestur yfirlitanna að í árslok hvers árs eru færð út endanlega afskrifuð útlán sem koma til lækkunar á brúttó vanskilafjárhæðum og hafa þannig áhrif á vanskil í lok 4. ársfjórðungs og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.