Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í apríl 2015 námu 906 milljónum króna, en af því voru almenn lán 296 milljón. Til samanburðar námu almenn útlán í apríl 2014, 318 milljónum króna. Þetta kemur fram í nýútgefinni mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs .

Í skýrslunni kemur fram að hlutfall undirliggjandi lánavirðis einstaklinga í vanskilum lækkaði í mánuðinum. Í lok apríl nam fjárhæð vanskila útlána til einstaklinga 3,2 milljörðum króna og var undirliggjandi lánavirði 33 milljarðar króna eða um 4,96% útlána sjóðsins til einstaklinga, samanborið við 10,28% í apríl 2014.

Heimili í vanskilum eru 1.838 og þar af eru 73 heimili með frystingu á lánum sínum. Heimilum í vanskilum hefur fækkað um 28% frá áramótum. Alls voru 4,28% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með lánin í vanskilum í lok apríl 2015. Sambærilegt hlutfall í lok mars var 4,52%.

Greiðslur Íbúðalánasjóðs vegna íbúðabréfa og annarra skuldbindinga námu 9,1 milljarði króna í apríl. Uppgreiðslur námu 1,4 milljarði króna í apríl samanborið við 2,6 milljarða í mars 2015.