Vanskil húsnæðislána eru nú í sögulegu lágmarki. Til marks um það þá hefur Íbúðalánasjóður einungis tekið til sín 23 eignir á uppboði á fyrstu fimm mánuðum ársins. Fara þarf meira en tíu ár aftur í tímann til að finna jafn góða stöðu húseigenda. Ástandið hefur því gjörbreyst frá því fyrir nokkrum árum, en til samanburðar eignaðist Íbúðalánasjóður 832 eignir á uppboði árið 2010. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íbúðalánasjóði.

Útlit er fyrir að sjóðurinn eignist aðeins 50-60 fullnustueignir á þessu ári en alls eru í dag 536 eignir í eigu sjóðsins og er söluundirbúningur vegna þeirra langt á veg kominn. Markmið sjóðsins er að ljúka við að selja stóran hluta þessara eigna á almennum markaði fyrir árslok og verður gert átak í sölu þeirra á komandi hausti.

Um 60% eigna Íbúðalánasjóðs eru í útleigu en um þriðjungur íbúðanna er leigður fyrri eigendum þeirra. Sjóðnum er heimilt að leigja fólki, sem missir íbúðir sínar í kjölfar vanskila, þær aftur tímabundið til að gefa því ráðrúm til að finna nýtt húsnæði. Tveir þriðju leigjenda sjóðsins hafa verið í þrjú ár eða meira í íbúðunum. Þeim stendur til boða að kaupa eignirnar, rétt eins og öðrum. Gerðarþolar, þ.e.a.s. þeir sem áttu íbúðina áður, geta þó einungis keypt með láni frá Íbúðalánasjóði að því gefnu að þeir séu ekki í vanskilum við sjóðinn í dag.

Í fréttatilkynningunni segir að fasteignasalar muni annast söluna og verður hagstæðasta tilboði tekið. Allir samningar við leigjendur íbúðanna eru tímabundnir og hafa leigusamningar þeirra að undanförnu verið endurnýjaðir að hámarki til 6 mánaða í senn.