Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í júlí 2015 námu 534 milljónum króna, en engin lán voru veitt til lögaðila. Til samanburðar námu almenn útlán á sama tímabili í fyrra 520 milljónum króna. Meðalfjárhæð almennra lána var 13 milljónir króna. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir júlímánuð.

Þar kemur fram að hlutfall undirliggja lánavirðis einstaklinga í vanskilum hækkaði í mánuðinum. Í lok júlí nam fjárhæð vanskila útlána til einstaklinga tæplega 3,3 milljörðum króna og var undirliggjandi lánavirði 34,6 milljarðar króna eða um 6,8% útlána sjóðsins til einstaklinga, samanborið við 9,39% í júlí 2014.

Heimili í vanskilum eru 1.798 og þar af eru 40 heimili með frystingu á lánum sínum. Alls voru 4,25% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með lánin í vanskilum í lok júlí 2015. Sambærilegt hlutfall í lok júní var 4,33%.

Fjárhæð vanskila útlána til lögaðila nam alls 4,1 milljarði króna og var undirliggjandi lánavirði 24,3 milljarðar króna. Tengjast því vanskil 16,29% lánafjárhæðar sjóðsins til lögaðila.