Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í maí síðastliðnum námu 178 milljónum króna, engin lán voru veitt til lögaðila. Til samanburðar námu almenn útlán á sama tímabili á síðasta ári 321 milljón króna. Meðalfjárhæð almennra lána var 11,8 milljónir króna. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu sjóðsins .

Þar kemur fram að hlutfall undirliggjandi lánavirðis einstaklinga í vanskilum hækkaði í mánuðinum. Í lok maí nam fjárhæð vanskila útlána til einstaklinga rúmlega 3,2 milljörðum króna og var undirliggjandi lánavirði 34 milljarðar króna eða um 6,6% útlána sjóðsins til einstaklinga, samanborið við 10,19% í maí 2014.

Heimili í vanskilum eru 1.855 og þar af eru 59 heimili með frystingu á lánum sínum. Alls voru 4,33% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með lánin í vanskilum í lok maí 2015. Sambærilegt hlutfall í lok apríl var 4,28%.