Í lok október nam fjárhæð vanskila útlána til einstaklinga um 1,7 milljörðum króna og var undirliggjandi lánavirði 17,4 milljarðar króna eða um 3,8% útlána sjóðsins til einstaklinga. Heimili í vanskilum eru 936 eða tæp 2,5% heimila sem eru með lán hjá sjóðnum. Þannig standa um 98% heimila í viðskiptum við ÍLS í skilum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í mánaðarskýrslu Íbúðarlánasjóðs fyrir október 2016.

„Afrakstur vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu lögaðila hefur skilað sér í umtalsverðri lækkun vanskila á árinu. Fjárhæð vanskila vegna útlána til lögaðila í lok október nam 533 milljónum króna og hefur hún lækkað um 2,5 milljarða frá upphafi árs 2016. Tengjast því vanskil 1,6%  lánafjárhæðar sjóðsins til lögaðila.

Vanskil ná samtals til 3,2% lánasafnsins, en sambærilegt hlutfall í ársbyrjun var 6,93%,“ segir í fréttatilkynningu frá ÍLS. Hægt er að nálgast skýrsluna hér .