Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í nóvember námu 639 milljónum króna, en þar af námu almenn útlán um 339 milljónum. Til samanburðar námu útlán í sama mánuði á síðasta ári 946 milljónum króna. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs .

Í skýrslunni kemur einnig fram að hlutfall undirliggjandi lánavirðis einstaklinga í vanskilum hafi lækkað í mánuðinum. Í lok nóvember hafi fjárhæð vanskila útlána til einstaklinga numið 4,4 milljörðum króna og var undirliggjandi lánavirði tæpur 51 milljarður króna, eða um 8,26% útlána sjóðsins til einstaklinga. Á sama tíma í fyrra var hlutfallið 10,61%.

Heimili í vanskilum eru 2.574 talsins og þar af eru 118 heimili með frystingu á lánum sínum. Alls voru 5,49% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með lánin í vanskilum í lok nóvember, en sambærilegt hlutfall í fyrra var 7,32%.

Fjárhæð vanskila útlána til lögaðila nam alls 3,6 milljörðum króna og nam undirliggjandi lánavirði 25,9 milljörðum króna. Tengjast því vanskil 17,38% lánafjárhæðar sjóðsins til lögaðila. Vanskil eða frystingar ná samtals til 10,03% lánasafnsins, en sambærilegt hlutfall í nóvember 2013 var 12,86%.