Vanskil lögaðila hafa dregist verulega saman hjá Íbúðarlánasjóði. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu sjóðsins. Vanskilin drógust aðallega saman í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu lögaðila. Í ágúst nam fjárhæð vanskila útlána til lögaðila 583 milljónum króna og undirliggjandi lánavirði 2,5 milljarðar eða um 1,8% útlána sjóðsins.

Til samanburðar var undirliggjandi lánavirði vanskila útlána 16,5 milljarðar í byrjun árs, sem er 14 milljarða lækkun á átta mánuð.

Sala íbúða tekur við sér

Íbúðarlánasjóður seldi 41 eign í ágúst. Þeim til viðbótar hefur Íbúðalánarsjóður samþykkt kauptilboð í 86 eignir og vinna nú tilboðsgjafar að fjármögnun þeirra. Sjóðurinn hefur því selt 737 eignir á árinu eða 20% fleiri eignir en á sama tímabili árið 2015 þegar 618 eignir seldust.