Hlutfall vanskila af útlánum hefur lækkað úr 1,6% í árslok 2004 í 1,5% lok 1. ársfjórðungs 2005. Í lok 1. ársfjórðungs 2004 var hlutfallið 2,7%. Vanskilahlutfallið hefur ekki verið lægra á síðustu 4 árum, samkvæmt samantekt Fjármálaeftirlitsins.

Tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miða við lok mars 2005 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan. Talnaefnið nær til vanskila sem staðið hafa lengur en 1 mánuð. Um er að ræða brúttó vanskil, þ.e. ekki hafa verið dregnar frá fjárhæðir sem lagðar hafa verið til hliðar sem sérstakar afskriftir. Sýnd er þróun vanskila frá árslokum 2000. Vanskilaupplýsingarnar sýna tölur fyrir innlánsstofnanir án dótturfélaga þeirra.

Vanskilahlutfall fyrirtækja er óbreytt eða 1,3% í lok 1. ársfjórðungs 2005 frá því sem það var í árslok 2004. Í lok 1. ársfjórðungs 2004 var hlutfallið 2,1%. Vanskilahlutfall fyrirtækja miðað við eins árs tímatöf er 1,8% sem er óbreytt frá því sem það var í árslok 2004. Vanskilahlutfallið miðað við 2ja ára tímatöf er rúmlega 2,5% sem er lítið eitt hærra en það var í árslok 2004 þegar það var tæplega 2,4%. Þessi hlutföll eru þau lægstu sem verið hafa á undanförnum tveimur til þremur árum.

Á yfirlitinu eru sýnd vanskilahlutföll annars vegar með eins árs tímatöf og hins vegar tveggja ára tímatöf og er þannig tekið tillit til áhrifa mikillar útlánaaukningar síðustu misseri á hlutfallstölurnar. Vanskilahlutföllin mæld á síðastnefndu mælikvarðana eru 2,2% og 3,0% af útlánum og eru þau talsvert lægri en verið hafa á undanförnum tveimur til þremur árum sem útreikningarnir ná yfir. Fjármálaeftirlitið bendir á að útlánaaukningin á undanförnum misserum kunni að koma fram í auknum vanskilum síðar. Hafa beri í huga að þátttaka innlánsstofnana í fasteignalánum frá og með seinni hluta ársins 2004 kann að hafa haft áhrif á þróun vanskila sem sýnd er á yfirlitinu, einkum vanskilahlutfall einstaklinga.

Vanskilahlutfall einstaklinga lækkaði úr tæplega 2,7% í árslok 2004 í 2,1% í lok 1. ársfjórðungs 2005. Í lok 1. ársfjórðungs 2004 var hlutfallið 5,2%. Vanskilahlutföll einstaklinga miðað við eins og tveggja ára tímatöf eru 4,0% og 4,4% og eru það mun lægri hlutföll en verið hefur á undanförnum tveimur til þremur árum.

Hafa verður í huga við lestur yfirlitanna að í árslok hvers árs eru færð út endanlega afskrifuð útlán sem koma til lækkunar á brúttó vanskilafjárhæðum og hafa þannig áhrif á vanskil í lok 4. ársfjórðungs og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.