Hlutfall vanskila af útlánum er tæplega 0,4% sem er lítillega lægra en það var í lok næsta ársfjórðungs á undan þegar hlutfallið var 0,5%. Í árslok 2006 var hlutfallið rúmlega 0,5%. Vanskilahlutfallið nú hefur ekki verið lægra frá árslokum 2000.

Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins en stofnunin hefur tekið saman tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við árslok 2007 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.

Talnaefnið nær til vanskila sem staðið hafa lengur en 1 mánuð. Um er að ræða brúttó vanskil, þ.e. ekki hafa verið dregnar frá fjárhæðir sem lagðar hafa verið til hliðar sem sérstakar afskriftir.

Vanskilahlutfall fyrirtækja er 0,3% samanborið við 0,4% í lok 3. ársfjórðungs 2007. Í árslok 2006 var hlutfallið 0,5%. Vanskilahlutföll fyrirtækja miðað við annars vegar eins árs tímatöf og hins vegar tveggja ára tímatöf eru 0,5% og 0,8% sem eru lítillega lægri hlutföll en voru í lok næstu ársfjórðunga á undan. Í árslok 2006 voru sambærileg hlutföll 0,7% og tæplega 1,2%.

Vanskilahlutfall einstaklinga er 0,7% sem er lítillega lægra en var í lok næstu ársfjórðunga á undan. Í árslok 2006 var hlutfallið tæplega 0,8%. Vanskilahlutföll einstaklinga miðð við eins og tveggja ára tímatöf eru 0,8% og 1,1% sem eru lítillega lægri hlutföll en voru í lok 3. ársfjórðungs 2007. Í árslok 2006 voru sambærileg hlutföll 1,1% og 1,8%.