Hlutfall vanskila af útlánum innlánsstofnana lækkaði lítillega á milli annars og þriðja ársfjórðungs 2007, úr 0,6% í um 0,5%.

Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við lok september 2007 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan. Talnaefnið nær til vanskila sem staðið hafa lengur en 1 mánuð. Um er að ræða brúttó vanskil, þ.e. ekki hafa verið dregnar frá fjárhæðir sem lagðar hafa verið til hliðar sem sérstakar afskriftir. Sýnd er þróun vanskila frá árslokum 2000. Vanskila-upplýsingarnar sýna tölur fyrir innlánsstofnanir án dótturfélaga þeirra.

Vanskilahlutfall ekki lægra frá árslokum 2000 Yfirlitið sýnir að hlutfall vanskila af útlánum er tæplega 0,5% sem er lítillega lægra en það var í lok næstu ársfjórðunga á undan þegar hlutfallið var u.þ.b. 0,6%. Í lok 3. ársfjórðungs 2006 var hlutfallið 0,7%. Vanskilahlutfallið nú hefur ekki verið lægra frá árslokum 2000. Á yfirlitinu eru ennfremur sýnd vanskilahlutföll með annars vegar eins árs tímatöf og hins vegar tveggja ára tímatöf og er þannig tekið tillit til áhrifa mikillar útlánaaukningar síðustu misseri á hlutfallstölurnar.

Vanskilahlutföllin mæld á síðastnefndu mælikvarðana eru 0,7% og 1,0% af útlánum sem eru svipuð hlutföll og voru í lok 2. ársfjórðungs 2007. Í lok 3. ársfjórðungs 2006 voru sambærileg hlutföll 1,0% og 1,6%. Athuga ber að útlánaaukningin á undanförnum misserum  kann að koma fram í auknum vanskilum síðar. Hafa ber í huga að þátttaka innlánsstofnana í fasteignalánum frá og með seinni hluta ársins 2004 kann að hafa haft áhrif á þróun vanskila sem sýnd er á yfirlitinu, einkum vanskilahlutfall einstaklinga.

Vanskil fyrirtækja lækka lítillega Vanskilahlutfall fyrirtækja er 0,4% samanborið við 0,5% í lok 2. ársfjórðungs 2007. Í lok 3. ársfjórðungs 2006 var hlutfallið 0,6%. Vanskilahlutföll fyrirtækja miðað við annars vegar eins árs tímatöf og hins vegar tveggja ára tímatöf eru 0,6% og 0,9% sem eru svipuð hlutföll og voru í lok næstu ársfjórðunga á undan. Í lok 3. ársfjórðungs 2006 voru sambærileg hlutföll 0,9% og tæplega 1,4%.

Vanskilahlutfall einstaklinga breytist lítið Vanskilahlutfall einstaklinga er 0,8% sem er svipað og var í lok næstu ársfjórðunga á undan. Í lok 3. ársfjórðungs 2006 var hlutfallið tæplega 1,0%. Vanskilahlutföll einstaklinga miðað við eins og tveggja ára tímatöf eru 0,9% og 1,3% sem eru svipuð hlutföll og voru í lok 2. ársfjórðungs 2007. Í lok 3. ársfjórðungs 2006 voru sambærileg hlutföll 1,4% og 2,8%.