Nýtt flugskýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli hefur risið hratt og er orðið fokhelt. Stefnt er að því að taka það í notkun í október næstkomandi og að verkinu ljúki undir næstu áramót. Icelandair mun frá fyrsta degi fullnýta þá aðstöðu sem skapast í nýja skýlinu fyrir eigin flota og viðskiptavini í tækniþjónustu að því er segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Í nýja skýlinu munu fara fram stærri viðhaldsaðgerðir, en með því er átt við stórar skoðanir sem taka 2-6 vikur ásamt breytingum á flugvélum. Með byggingu skýlisins þrefaldar Icelandair aðstöðu sína til framkvæmdar slíkra verka og getur því flutt flest þeirra til landsins en undanfarin ár hefur Icelandair í auknum mæli þurft að leita sér þessarar þjónustu erlendis vegna stækkandi flugflota.

Yfir 100 ný störf

Eftir að ákvörðun var tekin um byggingu skýlisins hafa þegar orðið til 50-60 langtímastörf og má ætla að annað eins bætist við á næstu misserum og heildarviðbótin sé þannig yfir 100 störf. Þessa dagana verið að auglýsa eftir flugvirkjum og líklegt að ráðnir verði 20-30 til viðbótar við það sem þegar er orðið. Icelandair hefur stutt við bakið á uppbyggingu flugvirkjanáms á Íslandi og þannig tryggt aðgang að sérmenntuðum starfskröftum.

Flugskýlið er byggt til að svara vexti Icelandair undanfarin ár og til framtíðar, en greitt aðgengi að viðhaldsþjónustu eykur öryggi og hagkvæmni með því að byggja upp þekkingu á flugvélum innan fyrirtækisins. Slíkt gerir Icelandair einnig kleyft að skapa sér sérstöðu með nýjungum í farþegarými og annarri tækni, en mun sveigjanlegra er að vinna slík verkefni með eigin aðstöðu.

Stærsta haf í húsbyggingu á Íslandi

Um er að ræða einn umfangsmesta þekkingariðnað á Íslandi, en í dag starfa um 470 manns á tæknisviði Icelandair, þar af um 370 í húsnæðinu við Keflavíkurflugvöll. Stærsti hópurinn er flugvirkjar en einnig er að finna þar á annað hundrað háskólamenntaðra starfsmanna.

Byggingin er um 27 metra hátt stálgrindarhús á steyptum undirstöðum og klædd að utan með einangruðum stálsamlokueiningum. Grunnflötur byggingarinnar er um 10.500 fermetrar og heildarflatarmál hennar um 13.600 fermetrar. Í byggingunni er stærsta  haf í húsbyggingu á Íslandi en þakbitar milli burðarveggja spanna 95 metra.