Útlit er fyrir að íbúðaskortur aukist á næstu árum að mati Húsnæðis og mannvirkjastofnunar (HMS), en stofnunin telur óuppfyllta húsnæðisþörf nú vera hátt í 4 þúsund íbúðir. Stofnunin segir að byggja þurfi meira en núverandi spár gera ráð fyrir, því íbúðaskorturinn vaxi um 2.300 íbúðir á næstu þremur árum verði ekkert gert.

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá hófst nú í hádeginu árlegt húsnæðisþing stofnunarinnar en í þetta sinn er þingið í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga. Á þinginu er kynnt ný skýrsla stofnunarinnar með spá um að íbúðaskorturinn aukist um 700 íbúðir á næsta ári og 1600 íbúðir í viðbót árið 2022.

Jafnframt telur stofnunin ljóst að þörf fyrir minni íbúðir muni aukast en meiri fjölgun á húsnæði en fjölda heimila minnkaði íbúðaskortinn tímabundið í fyrra, vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Óuppfyllt íbúðaþörf hér á landi nemur nú um 3.950 íbúðum, að mati HMS. Útlit er fyrir að íbúðaskorturinn aukist á næsta ári og enn meira árið 2022.

Spá HMS bendir til að íbúðaskorturinn muni vaxa um 2300 íbúðir til viðbótar á næstu þremur árum ef ekkert er að gert. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu HMS um stöðu og þróun húsnæðismála sem kynnt var á árlegu húsnæðisþingi HMS og félagsmálaráðuneytisins sem hófst kl.13.

Í skýrslunni kemur fram þörf fyrir að meðaltali 1.900 nýjar íbúðir á hverju ári fram til ársins 2040.

Þarf að byggja 36 þúsund íbúðir næstu 20 árin

Helsta ástæðan fyrir aukinni þörf á næstu þremur árum er sú að fjölgun heimila er áætluð meiri en mat á fjölgun íbúða miðað við spá um íbúðafjárfestingu, ásamt því að gert er ráð fyrir að ferðamannaiðnaðurinn taki við sér og fleiri íbúðir rati aftur inn á skammtímaleigumarkaðinn.

Þetta gefur til kynna að byggja þurfi meira en núverandi spár gera ráð fyrir til að sporna við aukningu á óuppfylltri íbúðaþörf á næstu árum. Þá er búist við því að íbúðaþörfin muni aukast sérstaklega mikið árin 2022-2025 og því er hætt við að óuppfyllt íbúðaþörf muni aukast á því tímabili.

Eftir árið 2030 mun íbúðaþörf aukast mun hægar og því er mögulegt að þá muni draga verulega úr óuppfylltri íbúðaþörf. Til ársins 2040 þarf líklega um 36 þúsund íbúðir í heildina til að mæta metinni undirliggjandi íbúðaþörf landsins. Þetta samsvarar að meðaltali um 1.900 íbúðum á ári.

Þörf fyrir minni íbúðir mun aukast

Í skýrslu HMS kemur fram að greiningar á fjölgun og samsetningu heimila gefi til kynna að einstaklingsheimilum muni fjölga meira en annars konar heimilum. Gert er ráð fyrir að fjölgunin nemi um 674 heimilum á ári til ársins 2040.

Hlutfallsleg fjölgun heimila mun einnig vera mest á meðal einstaklingsheimila en gert er ráð fyrir að þau verði rúmlega fjórðungi fleiri árið 2040 en þau eru nú. Alls mun um 46% af fjölgun heimila til ársins 2040 verða rakin til einstaklingsheimila. Því mun þörf fyrir minni íbúðir aukast mest.

Viðhorfskannanir styðja við þá ályktun, en samkvæmt könnun sem framkvæmd var af Zenter fyrir Íbúðalánasjóð í desember 2019 býr fólk að meðaltali í 135 fm húsnæði, en býst við að flytja í 119 fm húsnæði við næstu flutninga að meðaltali.

Nú þegar er byrjað að byggja fleiri litlar íbúðir en áður. Frá aldamótum hefur hlutfall byggðra íbúða, minni en 70 fm, verið að jafnaði um 12% af öllum íbúðum, en seinustu tvö ár hefur það farið upp í 32,5% og 28,5% á höfuðborgarsvæðinu.

Covid dró úr vandanum

Óuppfyllta íbúðaþörfin lækkaði í fyrra um 1.700 íbúðir á milli ára. Það má aðallega rekja til þess að meiri fjölgun hefur orðið á húsnæði en fjölda heimila. Byggingarmagn ársins 2020 náði því að vinna upp talsvert af óuppfylltu íbúðaþörf ársins.

Vegna COVID-19 faraldursins hefur talsvert dregið úr fólksfjölgun miðað við síðustu ár og fjöldi íbúða sem var áður alfarið í skammtímaleigu hefur bæst við framboð íbúðarhúsnæðis og lækkað þar með þörfina þó nokkuð.

Í skýrslu HMS segir að óvíst sé hversu hratt markaður fyrir skammtímaleiguhúsnæði til ferðamanna muni vaxa á ný á næstu árum vegna töluverðrar óvissu í efnahagsmálum og áframhaldandi baráttu við farsóttina.

Þá hafi mikið verið fjárfest í uppbyggingu hótela á síðustu árum sem muni líklega draga eitthvað úr þörf fyrir íbúðir í skammtímaleigu þegar ferðamannaiðnaðurinn tekur aftur við sér.