Ævar Þorsteinsson eigandi Kraftvéla og Eiður H. Haraldsson fyrrum forstjóri og eigandi í Háfelli ehf. hafa keypt rekstarfélagið Vélar & Þjónustu. Félagið hefur verið í eigu Kaupþings frá því það varð gjaldþrota í september 2004. Hafa nýju eigendurnir ráðið Viktor Karl Ævarsson sem framkvæmdastjóra.
Kaupverðið er ekki gefið upp, en félagið er með umboð m.a. fyrir fjölmargar gerðir vinnuvéla og landbúnaðartækja. Auk þessara kaupa munu þeir félagar fá nokkur vörumerki sem Vélarver hf. hafði áður á sinni könnu en það félag varð gjaldþrota í ágúst.
Vélver var m.a. með umboð fyrir hinar þekktu JCB vinnuvélar, Alfa Laval mjaltakerfi og ýmislegt fleira, en ekki er búið að ganga endanlega frá því hvaða vörumerki flytjast yfir til Véla & Þjónustu. Þjónustu hefur verið haldið gangandi við landbúnaðartæki og önnur tæki undir stjórn tilsjónarmanns þrotabús Vélavers.
Ævar Þorsteinsson segir að auk nokkurra vörumerkja sem flytjist frá Vélaveri komi líklega þaðan 3 til 5 starfsmenn.