Stjórn Landssambands veiðifélaga varar við að reynt sé að gera laxveiðiferðir í viðskiptaerindum tortryggilegar og koma jafnframt óorði á fyrirtæki sem bjóða viðskiptavinum sínum til laxveiða.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landssambandi veiðifélaga.

Stjórnarmenn fjölluðu um málið og ályktuðu af því tilefni eftirfarandi:

Stjórn Landssambands veiðifélaga vekur athygli á því að nýting veiða í ám og vötnum er mikilvæg atvinnugrein sem skilar þjóðarbúinu miklum verðmætum. Lax- og silungsveiði veitir á annað þúsund Íslendingum vinnu og styrkir mjög búsetu í dreifðum byggðum landsins.

Stjórnin varar við þeim málflutningi, sem stundum er hafður í frammi, þar sem reynt er að koma óorði á þau fyrirtæki sem kaupa laxveiði fyrir viðskiptavini sína. Hún minnir jafnframt á að brýnt er að viðhalda viðskiptasamböndum milli Íslendinga og erlendra viðskiptaaðila  og stofna til nýrra.

Sú einstæða upplifun, sem veiðimenn eiga á bökkum fallegrar veiðiár í íslenskri náttúru, er ótvírætt lóð á vogarskálarnar í þeim efnum.

Landssamband veiðifélaga telur fráleitt að gera laxveiðiferðir tortryggilegar í þessu sambandi frekar en aðra  ferðaþjónustu sem stendur til boða á Íslandi og varar við umræðu af því tagi.

Minnt skal á að metveiði var í ánum sumarið 2008 og að ástand laxastofna hérlendis er það besta sem gerist við Norður-Atlantshaf.