Stjórn Ferðamálasamtaka Íslands lýsir í tilkynningu yfir áhyggjum af því sem kallað er „gullgrafaraæði“ sem virðist vera að grípa um sig í ferðaþjónustunni. Þar segir að samkvæmt upplýsingum úr fjölmiðlum megi ætla að 3.000 ný gistirúm bætist við hér á landi á næstunni.

„Til að fylla þau rúm þurfum við að fjölga ferðmönnum um 1,1 milljón á ári umfram þær spár sem nú liggja fyrir. Fjöldi hótela er á teikniborðinu, án þess að fyrir liggi áreiðanlegar upplýsingar um þörfina eða hagkvæmi fjárfestinga. Á sama tíma eykst framboð á eftirlits-og leyfislausri gistingu. Ársnýting á gistihúsum og hótelum er innan við 50%.“

Stjórn samtakanna skorar á fjárfesta og opinbera aðila að staldra við og meta stöðuna út frá raunhæfum forsendum.