Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla boðuðum niðurskurði Umhverfisstofnunar í landvörslu og vilja að stjórnvöld leggi meira fjármagn til landvörslu.

Í tilkynningu frá samtökunum segir að aukinn fjöldi erlendra ferðamanna kalli á aukna þjónustu og sé landvarsla ekki undanskilin þeirri ábyrgð. Samkvæmt tölum Ferðamálastofu megi reikna með að skatttekjur af ferðaþjónustu verði a.m.k. 27 milljarðar króna í fyrra. Verði skorið niður í landvörslu muni að óbreyttu verða séð fram á ófremdarástand á svæðum sem dæmd hafa verð í hættu af Umhverfisstofnun.