Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér tilkynningu þar sem varað er við því að von gæti verið á stórum jarðskjálfta á höfuðborgarsvæðinu eða í nágrenni. Í tilkynningunni segir að undanfarnar vikur hafi orðið aukning á jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaganum og nágrenni hans.

Meðal annars varð jarðskjálfti af stærð 4 í lok maí sem átti upptök við Kleifarvatn og fannst vel víða á höfuðborgarsvæðinu. Í framhaldi slíks atburðar getur spennuástand í jarðskorpunni orðið óstöðugra á stærra svæði í kring og bendi greining til þess að slíkur óstöðugleiki geti verið til staðar allt frá Kleifatvatni og austur í Ölfus.

Þá gefa mælingar á jarðskorpuhreyfingum síðustu árin vísbendingar um að á þessu svæði sé mögulega talsverð spenna sem getur losnað út í stærri skjálftum. Er bent á sögulegar upplýsingar um að jarðskjálftar á þessu svæði geti orðið allt að 6,5 á stærð. Er vísað til tveggja skjálfta á Bláfjallasvæðinu árin 1929 og 1968. Þeir skjálftar ollu ekki miklu tjóni á höfuðborgarsvæðinu en þó ber að taka fram að byggð hefur færst mun nær þessu skjálftasvæði undanfarin ár.

Í tilkynningunni segir einnig:

„Búast má við því að áhrif skjálfta af þessari stærðargráðu í nálægum byggðum (höfuðborgarsvæðinu, Grindavík, Þorlákshöfn, Hveragerði og Reykjanesbæ) verði þannig að allir finni jarðskjálftann, margir verði skelkaðir og jafnvel hlaupi út úr húsum. Þung húsgögn gætu hreyfst og múrhúðun sprungið af veggjum á stöku stað.  Annars er ekki að búast við miklu tjóni á vel byggðum húsum.“

Bent er á leiðbeiningar á vef Almannavarna um hvernig draga megi verulega úr hættu af völdum jarðskjálfta.

Viðbót kl. 13:38: Kristín Jónsdóttir, fagstjóri jarðskjálftavár hjá Veðurstofu Íslands, segir að tilkynningin sé ekki spá um stóran jarðskjálfta. Spennan á svæðinu muni þó losna úr læðingi en ómögulegt sé að spá fyrir um hvar eða hvenær. Þetta kemur fram á mbl.is .