Loftrýmisgæsla Dana, aukin samvinna Norðurlanda í öryggismálum og samstarf íslensku landhelgisgæslunnar og danska flotans um leit, eftirlit og björgun á Norðurslóðum voru meðal þeirra mála sem rædd voru á fundi Søren Gade, varnarmálaráðherra Danmerkur með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra og Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en koma Gade tengist loftrýmisgæslu danska hersins, sem stendur yfir fram að mánaðarmótum.

Í tilkynningunni kemur fram að utanríkisráðherra þakkaði Gade fyrir framlag Dana til loftrýmisgæslu umhverfis Íslands og sagði hana til marks um samstöðu Norðurlandanna.

Í því sambandi ræddu Össur og Gade sérstaklega Stoltenberg-skýrsluna svokölluðu sem utanríkisráðherrar Norðurlandanna kynntu í febrúar sl. og fjallar um nánara samstarf Norðurlandanna í öryggis- og varnarmálum. Tillögur Stoltenbergs verða útfærðar nánar og ræddar á næsta fundi norrænna utanríkisráðherra, sem haldinn verður í maí.

Ráðherrarnir þrír ræddu öryggismál á Norðurslóðum, m.a. í tengslum við aukna skipaumferð. Það tengist m.a. nánara samstarfi Landhelgisgæslunnar og danska flotans um eftirlit, leit og björgun á Norður-Atlantshafi.