Sænska orkufyrirtækið Vattenfall er nú verðmætasta fyrirtæki Svíþjóðar. Verðmæti félagsins nemur nú 400 milljörðum sænskra króna en það er alfarið eigu sænska ríkisins.

Bæði velta og hagnaður félagsins hefur aukist á síðustu árum segir í frétt Dagens Industri. Félagið hefur keypt önnur orkufyrirtæki með markvissum hætti undanfarin ár.