Ísland hefur löngum verið mikilvægt fyrir kínverska framleiðendur,“ segir Wang Zhiping, stjórnarformaður Canton vörusýningarinnar í Guangzhou í Kína. „Við hrunið dró verulega úr innflutningi til Íslands frá Kína, en það hefur smám saman verið að aukast. Við viljum stappa stálinu í Íslendinga og opna augu manna fyrir gagnkvæmum hagsmunum af Canton vörusýningunni. Þeir felast í því að Íslendingar kaupi vandaðar vörur á góðu verði frá Kína og kanni um leið möguleikann á útflutningi á íslenskum gæðavörum og þekkingu til Kína.“
4.230 milljarða viðskipti
Á Canton vörusýningunni í apríl síðastliðnum fóru fram viðskipti upp á 4.230 milljarða króna. Upphæð viðskipta á sýningunni hefur vaxið ár frá ári og bendir Wang Zhiping á að þar sé ekki eingöngu um að ræða áhugasama erlenda kaupendur að kínverskum vörum. „Tekjur í Kína fara hækkandi og með hækkandi tekjum fylgja kröfur um meiri gæði. Fólk er opið fyrir tilbreytingu og nýjungum og þess vegna er vaxandi áhugi á innfluttum vörum, ekki síst gæðavörum.“
Milljón fermetra sýningarsvæði
Á síðustu Canton vörusýningu voru 24.415 sýnendur með yfir 150 þúsund vöruflokka og þjónustuþætti. Sýningarsvæðið er rúmlega milljón fermetrar og á síðustu sýningu voru 207 þúsund gestir. Sýningin er eingöngu ætluð kaupendum. Aðeins 10 Íslendingar sóttu þá sýningu. Canton vörusýningin er haldin í þremur hlutum vor og haust.