Horfur eru á vaxandi atvinnuleysi á næstunni, einna helst vegna hefðbundinnar árstíðarsveiflu. Þar að auki eru vísbendingar um að slakinn í hagkerfinu láti til sín taka.

Greining Íslandsbanka fjallar um málið í dag. „Má hér benda á niðurstöður úr nýjustu viðhorfskönnun Capacent Gallup, sem gerð var í desember síðastliðnum á meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins og niðurstöður eru birtar um á heimasíðu SA. Þær gefa til kynna að enn syrti í álinn á næstu mánuðum á vinnumarkaði, en mun fleiri fyrirtæki höfðu í hyggju að fækka starfsmönnum en fjölga þeim, eða um 26% á móti 14%.

Það er jafnframt heldur lakari niðurstaða en í síðustu könnun sem gerð var í september síðastliðnum. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi komi til með að verða á bilinu 8,3% til 8,6% nú í janúar en á sama tíma fyrir ári síðan fór það úr 8,2% í 9,0%. Mest fór það upp í 9,3% í febrúar/mars í fyrra og reikna má einnig með að atvinnuleysi komi til með að ná hámarkinu á árinu á þessu tímabili,“ segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka í dag.

Spá 7,5% atvinnuleysi í ár

Segir að framvindan á nýliðny ári sé í takt við það sem greiningin spáði. Spáin gerði ráð fyrir 8,1% atvinnuleysi á síðasta ári, en það er mesta atvinnuleysi sem mælst hefur hér á landi,

„Reikna má með að atvinnuleysi verði minna í ár en á því síðasta, nema verulegt bakslag verði á bata hagkerfisins. Við reiknum með 7,5% atvinnuleysi í ár, og er það sama hlutfall og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerir ráð fyrir í nýjustu spá sinni sem var birt síðastliðinn föstudag. Erum við þó nokkuð svartsýnni en bæði Seðlabanki Íslands og Hagstofan sem reikna með 7,2% - 7,3% atvinnuleysi, en heldur bjartsýnni en hagdeild ASÍ sem reiknar með 7,7% atvinnuleysi á árinu. Þó er ljóst að leitnin er sú sama í öllum þeim spám sem gerðar hafa verið opinberlega og má því reikna með að atvinnuleysi hafi nú þegar náð hámarki og fari minnkandi á næstu misserum með auknum efnahagsumsvifum.“

Ríflega þriðjungur án atvinnu í að minnsta kosti ár

„Undanfarna mánuði hefur verulegur fjöldi einstaklinga verið atvinnulaus í meira en 6 mánuði. Þannig voru alls 13.972 einstaklingar atvinnulausir í lok desember og hafði um 7.221 þeirra, eða sem nemur um 52%, verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur. Í lok desember fyrir ári voru 15.329 einstaklingar atvinnulausir og þar af um 49% sem höfðu verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur. Hefur því ekki mikil breyting orðið á hvað þennan fjölda varðar. Á hinn bóginn hefur orðið gríðarleg breyting á fjölda þeirra sem hafa verið atvinnulausir í meira en ár og hafa þeir aldrei mælst fleiri en nú. Þannig höfðu 4.969 einstaklingar verið án atvinnu í meira en ár, eða sem nemur ríflega þriðjungi atvinnulausra, en á sama tíma í fyrra voru þeir 3.224 talsins eða um 21% atvinnulausra,“ segir í Morgunkorni.