Glitnir hefur ákveðið að hækka vexti á nýjum íbúðalánum frá og með 21. ágúst, að því er fram kemur í tilkynnnigu.

Vextir húsnæðislána án vaxtaendurskoðunar hækka úr 5,20 % í 5,80 %.

Vextir húsnæðislána með vaxtaendurskoðun hækka úr 6,20 % í 6,50 %.

Þetta gildir um ný lán sem verða stofnuð frá og með deginum í dag, 21. ágúst en hefur ekki áhrif á eldri lán. Ástæðu hækkunarinnar nú má rekja til vaxtahækkana á mörkuðum undanfarið og aðstæðna á fjármálamarkaði.