VB Sjónvarp ræddi við fjölmarga aðila á kosningavöku bandaríska sendiráðsins sem fór fram á Hilton Nordica á þriðjudagskvöld í tilefni forsetakosninganna í Bandaríkjunum og voru þeir beðnir um að spá fyrir um úrslit kosninganna áður en fyrstu tölur bárust.

Meðal þeirra sem rætt var við var gestgjafinn sjálfur, Luis E. Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.