Von er á ísfisktogaranum Akurey AK til Sauðárkróks í kvöld með um 80 tonna afla. Þetta er afrakstur veiðiferðar skipsins á Austfjarðamið en aflinn framan af veiðiferðinni var mjög slakur.

Frá þessu segir á heimasíðu Brims.

„Við vorum fyrstu dagana á SA-miðum í leiðinda brælu og litlum afla. Veðrið var of slæmt til að verjandi væri að reyna tveggja trolla veiðar. Við fluttum okkur norðar og á Digranesflaki fundum við loks fisk og fengum mjög góðan afla,” segir Magnús Kristjánsson, skipstjóri í veiðiferðinni, í frétt Brims.

Að hans sögn hafði veðrið gengið niður þegar Akurey kom á Digranesflak. Þar var því hægt að toga með tveimur trollum samtímis.

„Þorskurinn á Digranesflaki var í einhverju öðru æti en síld en sunnar var síldin það sem heillaði þorskinn,” segir Magnús en hann kveður aflabrögðin í sumar hafa verið upp og ofan.

„Við höfum verið fyrir norðan í sumar og nú fyrir austan. Við höfum ekki landað í Reykjavík nema þrisvar frá því um mánaðamótin júní og júlí en annars hefur öllum afla verið landað á Sauðárkróki og honum ekið suður til vinnslu. Við höfum e.t.v. verið heppnir og afli okkar hefur verið þokkalegur í sumar,” segir Magnús.