Advania hlaut á dögunum verðlaun frá DynamicWeb fyrir að sameina fimm vefverslanir S4S og færa í svokallaðan hauslausan strúktúr. Verkefnið var valið besta veflausn ársins á heimsvísu en um 600 tilnefningar bárust frá samstarfsaðilum DynamicWeb. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Vefverslun S4S er fyrsta hauslausa vefverslunin sem sett er í loftið með DynamicWeb sem bakenda. Verkefnið var valið veflausn ársins á árlegri ráðstefnu DynamicWeb sem fram fór í Danmörku á dögunum. DynamicWeb er meðal fremstu framleiðenda vefverslanakerfa í heiminum og er Advania í hópi 300 samstarfsaðila fyrirtækisins,“ segir í tilkynningu.

Í fyrra hafi Advania lokið við að færa allar fimm vefverslanir S4S í áðurnefndan hauslausan strúktur og sameina þær í eina körfu. Framendinn hafi verið skrifaður frá grunni samkvæmt hönnun frá Metal. „Ávinningurinn af breytingunni var mikill fyrir viðskiptavini S4S en hraði vefverslunarinnar hefur aukist mikið og notendaupplifunin verið bætt. Viðskiptavinir geta verslað vörur úr öllum verslunum S4S, sett allt í sömu körfuna og gengið frá einni pöntun.“

Starfsfólk fyrirtækisins finni einnig fyrir mikilli breytingu. Singles Day sé jafnan stærsti söludagur vefverslana S4S. Fyrir sameininguna hafi það tekið starfsfólk yfir tvær vikur að afgreiða allar pantanir sem bárust þann dag. Eftir að nýja vefverslunin fór í loftið taki afgreiðslan aftur á móti aðeins einn og hálfan dag. Eftir breytinguna hafi viðskiptavinir gert stærri pantanir og veltan aukist til muna. Mínar síður sameiginlegrar vefverslunar sýni pantanasögu viðskiptavinarins úr öllum vefverslunum.

„Með tilfærslu úr hefðbundnu vefverslunarkerfi í hauslausan strúktur getur S4S tileinkað sér nýjar tæknilausnir án niðurtíma fyrir viðskiptavini sína. S4S er með stóra stafræna drauma og þessi tilfærsla gerir þeim kleift að láta þá rætast,” segir Arna Gunnur Ingólfsdóttir, ráðgjafi hjá veflausnum Advania.

„Við erum búin að vera á mikilli stafrænni vegferð og að fá eina körfu á allar okkar netverslanir var einn af meginþáttunum í því sem við vildum fá út úr nýrri síðu, ásamt því að vilja mikinn hraða og lágmarka niðurtíma eins og hægt er. Þetta fengum við allt og erum mjög ánægð með nýju síðurnar,” segir Pétur Þór Halldórsson, forstjóri S4S.

Um S4S:

S4S er íslenskt verslanafyrirtæki sem rekur þrettán verslanir og fimm netverslanir, þar á meðal Ellingsen.is, Air.is og skór.is. Hjá fyrirtækinu starfa um 188 starfsmenn.