Í júlímánuði 2016 voru gefin út 7.408 íslensk vegabréf, sem er fækkun um 17,7% frá sama mánuði 2015, þegar gefin voru út 8.997 vegabréf.

Á árinu voru flesti vegabréf gefin út í júnímánuði, eða 9.185 en á síðustu 12 mánuðum hafa þau fæst verið 3.689  í desember. Þessar niðurstöður koma fram á vef Þjóðskrár Íslands.