Í 1. tölublaði Framkvæmdafrétta 2009 sem kemur út í dag mánudag 26. janúar er auglýst útboð um endurgerð á 7,4 km kafla á Rangárvallavegi (264). Vegna aðstæðna var útboðinu frestað óákveðið en það var fyrst auglýst í október síðastliðnum.

Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Þar kemur einnig fram að í næsta tölublaði framkvæmdafrétta sem kemur út eftir viku, 2. febrúar, er síðan reiknað með að bjóða út tvö stór verk, þ.e.a.s. Vopnafjarðartengingu (Bungulækur – Vopnafjörður ásamt Hofsársdalsvegi) og kaflann Kjálkafjörður – Vatnsfjörður á Vestfjarðarvegi um Barðaströnd.

Á næstunni verða síðan einnig boðin út verk á suðvesturhorni landsins og víðar.