Í nýgengu útboði Vegagerðarinnar á áætlunarakstri á sérleyfisleiðum er í fyrsta sinn beitt sérstöku ákvæði til að verjast kennitöluflakki. Nýmælin felast í því að viðskiptasaga stjórnenda og helstu eigenda verður könnuð aftur í tímann og getur orðið tilefni til frávísunar. Ekki er nóg að stofna nýtt fyrirtæki með nýja og hreina kennitölu eða grípa til ónotaðrar kennitölu ef menn hafa verið svo fyrirhyggjusamir að verða sér út um kennitölur til seinni nota, heldur er litið til viðskiptasögu stjórnenda og helstu eigenda og eðli rekstrar.

Hér er á ferðinni nýmæli því að áður dugði að stofna nýtt fyrirtæki eða endurvekja sofandi kennitölu og þar með hurfu ógreidd lífeyrissjóðsgjöld, skattar og skuldir við birgja og jafnvel gömul dómsmál. "Þetta reyndist sumum þægileg hókus pókus aðferð sem gerði þeim kleift að taka þátt í opinberum útboðum í ójafnri samkeppni við fyrirtæki sem greiða samviskusamlega skatta og gjöld," segir í frétt á heimasíðu Samtaka iðnaðarins.

Samtök iðnaðarins hafa opinberlega vakið máls á að kennitöluflakk er alvarlegt vandamál í íslensku viðskiptalífi og við því verði að bregðast. Í umræðunni höfum við bent á að opinberir aðilar geti sem kaupendur á útboðsmarkaði haft veruleg áhrif til bóta og á liðnum vetri bentum við á hvernig breyta mætti ákvæðum í útboðsgögnum í þessu skyni.

Samtök iðnaðarins telja að þetta breytta verklag Vegagerðarinnar geti skipt sköpum til að stemma stigu við ómældu tjóni sem kennitöluflakkarar baka íslensku atvinnulífi og heiðarlegum þátttakendum á markaði.