Í yfirlýsingu sem Baugur Group hefur sent frá sér kemur fram að fyrirtækið hefur  tekið þá ákvörðun að lýsa yfir andstöðu við hvalveiðar Íslendinga.

Í yfirlýsingunni kemur fram að tímarnir hafi breytst frá því sjávarútvegurinn var okkar aðalútflutningsgrein  og um leið hafi þarfnirnar breyst. "Útrás íslenskra fyrirtækja hefur verið gríðarleg á undanförum árum og fer vaxandi hvort sem um ræðir á sviði tísku, lyfjaframleiðslu, matvöru, bankastarfsemi eða tónlistar svo fátt sé nefnt. Þessi þróun er rétt hafin og aðeins tímaspursmál hvenær þessar greinar munu færa okkur jafn miklar tekjur og sjávarútvegurinn gerir nú. Breytingarnar hafa gert það að verkum að nú þurfum við að horfa til fleiri þátta en þeirra sem snúa einungis að sjávarútveginum," segir í yfirlýsingunni.

Þar er einnig bent á að mikil andstaða er gagnvart hvalveiðum í heiminum í dag hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Fólk í ferðaþjónustu hér á landi hefur óttast mjög þau áhrif sem hvalveiðar Íslendinga kunna að hafa en samkvæmt Samtökum ferðaþjónustunnar hafa fjölmargir afpantað bókanir hingað til lands vegna ákvörðunar stjórnvalda um að hér skuli hvalir veiddir segir í yfirlýsingunni.

"En það er ekki bara ferðaþjónustan sem á í vanda. Fyrirtæki erlendis í eigu Íslendinga hafa mörg hver átt í erfiðleikum vegna málsins því fjölmargir hópar hafa hótað því að hætta að versla við þessi fyrirtæki nema hvaleiðum Íslendinga verði hætt hið snarasta. Hvalveiðar eru því farnar að skaða íslensk fyrirtæki og hugsanlegan áframhaldandi vöxt þeirra í framtíðinni.

Sjávarútvegurinn er og verður Íslendingum ávallt mikilvægur. Hins vegar hafa aðrar greinar verið að ryðja sér rúms í alþjóðlega viðskiptasamfélaginu og það með góðu gengi. Við getum öll verið sammála um að best sé að útflutningstekjur þjóðarinnar komi frá fleiri en einum geira, enda hefur áhættan hingað til verið töluverð. Ekki ætti að koma á óvart að einhverju þurfi að fórna til að svo verði. Hefur Baugur Group því tekið þá ákvörðun að lýsa yfir andstöðu við hvalveiðar Íslendinga," segir í yfirlýsingu sem Jón Ásgeir Jóhannesson skrifar undir.