Ævar Jóhannsson, skipstjóri á frystitogaranum Örfirisey RE, kom heim fyrir helgina eftir mjög velheppnaða veiðiferð í Barentshaf. HB Grandi greinir frá.

„Þetta var mjög góður túr og ég held að ég fari rétt með þegar ég segi að um sé að ræða met hjá HB Granda,“ er haft eftir Ævari á vef HB Granda.

„Við vorum með alls rúmlega 1.500 tonna afla upp úr sjó í túrnum og þar af voru um 1.400 tonn í rússnesku landhelginni. Við kláruðum kvótann þar og eftir siglinguna heim til Íslands vorum við að veiðum djúpt úti af Vestfjörðum. Markmiðið var að veiða grálúðu en veiðin var að fjara út þegar við komum heim. Aflinn var því minni en ella.“

Siglingin til og frá miðunum tók um 11 sólarhringa en þess utan var vinnslan í gangi allan sólarhringinn. Mikið reyndi á áhöfnina og segir Ævar að skipverjar hafi staðið sig með fádæmum vel.

Að sögn Ævars var aflinn í Barentshafi aðallega þorskur.

„Við vorum þó með um 100 tonn af ýsu, einhverja tugi tonna af ufsa en allt annað var nánast í sýnishornaformi. Þegar veiðunum þessa síðustu daga í íslensku landhelginni en bætt við þá náðum við alls að veiða 20 mismunandi fisktegundir. Ég man ekki eftir að hafa verið með jafnmargar tegundir í túr.“

Ævar greinir frá því að eftir nokkrum kössum af fisknum gjölni hafi verið landað eftir túrinn, en hann var hausaður og heilfrystur um borð.

„Þetta er afskaplega hvítur fiskur á holdið en frekar bragðlítill. Ég get vitnað um það eftir að hafa borðað gjölni,“ segir Ævar.