Íslenski fiskiskipaflotinn veiddi fisk fyrir 130,8 milljarða króna á fyrstu tíu mánuðum síðasta árs. Þetta er um 7,5 milljarða minna verðmæti en ári fyrr. Hlutfallslega nemur samdrátturinn 5,5%, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar .

Fram kemur á vef Hagstofunnar að aflaverðmæti botnfisks var tæplega 75,9 milljarðar króna og dróst saman um 6,8% miðað við sama tímabil í hittifyrra. Þá nam verðmæti uppsjávarafla rúmum 41,6 milljörðum króna í janúar til október 2013, sem er um 2,1% samdráttur á milli ára.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 61,5 milljörðum króna og dróst saman um 5,1% miðað við fyrstu tíu mánuði ársins 2012. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 1,7% milli ára og nam tæplega 17,9 milljörðum króna, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.