Árið 2012 var heimsaflinn 92,5 milljónir tonn, sem er tæpum 2,4 milljónum tonnum minna en árið áður, samkvæmt tölum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands .

Mest af heimsaflanum var veitt í Asíu, næstmest í Ameríku og svo Evrópu. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2012, en Norðmenn veiddu mest allra Evrópuþjóða og eru í 12. sæti yfir mestu veiðiþjóðir. Íslendingar veiddu næstmest allra Evrópuþjóða og eru í 18. sæti heimslistans.

Samkvæmt tölum frá Alþjóðahafrannsóknarráðinu veiddust tæp 1,3 milljón tonn við Ísland árið 2012, eða um 1,4% af heimsaflanum. Af þeim afla voru erlend ríki með um 69 þúsund tonn, eða um 5,4% aflans, þar af var loðna um 88%. Færeyjar, Grænland og Noregur veiddu samanlagt 99,6% af afla erlendra ríkja við Ísland.