Meirihluti atvinnuveganefndar alþingis samþykkti á fundi sínum í morgun að leggja til hækkun veiðigjalda um 12% vegna næsta fiskveiðiári sem hefst 1. September.

Samþykki alþingi tillöguna munu veiðigjöld nema rúmum 9,6 milljörðum króna.

Jón Gunnarsson formaður nefndarinnar sagði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins þessa ákvörðun meirihlutans tekna vegna afkomubata í greininni.