Veiðikortið
Veiðikortið
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Veiðikortið er að hefja sitt sjöunda starfsár og Ingimundur Bergsson hjá Veiðikortinu segir sölu kortanna hlaupa á einhverjum þúsundum á hverju ári. Hann segir söluna hafa gengið nokkuð vel það sem af er sumri en vonar að næstu vikur verði góðar veðurfarslega því það skiptir miklu máli fyrir áhuga fólks.

Veiðikortið veitir aðgang að 35 veiðivötnum víðsvegar um landið og að auki er hægt að tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra. Með kortinu fylgja einnig ítarlegar lýsingar á veiðisvæðunum, veiðireglur, kort og myndir.