Fram kemur í fréttatilkynningu frá Orkuveitunni að hún hefur staðið að margvíslegum rannsóknum á lífríki Þingvallavatns og vöktun þess einkum eftir að heitavatnsframleiðsla hófst á Nesjavöllum árið 1990. Rannsóknirnar hafa þó einkum beinst að áhrifum jarðhitanýtingarinnar á vistkerfi vatnsins.

Nokkrir hagsmunaaðilar hafa um nokkurra ára skeið haft með sér formlegt samstarf um vöktun vatnsins. Hita og þunga samstarfsins bera Orkuveitan og Landsvirkjun, sem rekur vatnsaflsvirkjanir í Soginu. Aðild Umhverfisstofnunar og Þjóðgarðsins á Þingvöllum að samstarfinu er einnig afar mikilvæg.

Vísindafólk á vegum Náttúrufræðistofu Kópavogs hefur átt drýgstan þátt í rannsóknunum sjálfum síðustu ár, auk Matvís og sjálfstætt starfandi vísindafólks. Rannsóknirnar hafa varpað skýrara ljósi á ýmsa áhrifaþætti lífríkisins í vatninu, náttúrulegra breytinga og breytinga af mannavöldum.

Tekjurnar af veiðirétti á svæðinu nema nú tæpum tveimur milljónum króna á ári og ákveðið hefur verið að þær renni óskiptar til frekari rannsókna. Lætur nærri að framlag Orkuveitunnar til þeirra tvöfaldist við þetta. Fénu verður ráðstafað að höfðu samráði við samstarfsaðila um vöktun Þingvallavatns en hugur stjórnar Orkuveitunnar stendur til þess það muni einkum nýtast til frekari rannsókna á hinum merka urriðastofni í vatninu, sem þykir einstakur.