Stjórn Samtaka atvinnulífsins lýstu yfir eindregnum stuðningi við sjónarmið Landssamband íslenskra útvegsmanna að fella að fullu niður veiðigjald á sjávarútveginn.

Samtök atvinnulífisins segja að mjög illa horfi með afkomu sjávarútvegsins og því eru engin rök fyrir sérstakri skattlagningu á þá atvinnugrein umfram aðrar. Samtökin hvetja ríkisstjórn og Alþingi til þess að breyta fyrirliggjandi frumvarpi um niðurfellingu veiðigjalds að hluta til þannig að gengið verði alla leið og að sjávarútvegurinn losni alfarið við þetta sérstaka gjald.