Gengisvísitalan var 169,9 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis sem er hæsta gildi gengisvísitölunnar við lok markaða frá upphafi.

Krónan hefur veikst um 1,4% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en um 0,9% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því fyrir helgi.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 171 stig, sem er jafnframt hæsta opinbera gengi frá upphafi, en var á föstudag 168,4 stig.

Eins og fyrr segir er opinbert gengi í morgun það hæsta frá upphafi og markaðsgengi við lok markaða einnig það hæsta frá upphafi. Áður náði gengisvísitalan hámarki síðastliðinn miðvikudag þegar opinbert gengi Seðlabankans var 169,2 stig.

Þá var markaðsgengi gengisvísitölunnar við lok markaða síðastliðinn þriðjudag 169 stig sem þá var met. Á þriðjudaginn síðasta náði gengisvísitalan einnig hámarki á mörkuðum þegar hún fór um stund yfir 170 stig í fyrsta skipti. Í dag fór hún í 171 stig innan dags.

Krónan hefur nú veikst um 2,2% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 91 krónu, Evran í 129,2 krónum og Sterlingspundið í 162,7 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 81,3 krónum, japanskt jen í 0,85 krónum og danska krónan í 17,3 krónum.