Gengisvísitalan var 178,3 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,3% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 3,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Gildi gengisvísitölunnar hefur slegið met á hverjum einasta degi í þessari viku og krónan veikst í samræmi við það.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 177,3 stig, sem er jafnframt hæsta opinbera gengi frá upphafi, en var í gær 172,7 stig sem þá var hæsta opinbera gengið til þessa.

Krónan hefur nú veikst um 5,8% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 94,7 krónum, Evran í 136,1 krónu og Sterlingspundið í 171,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 86 krónum, japanskt jen í 0,90 krónum og danska krónan í 18,2 krónum.