Gengisvísitalan var 167,5 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og styrktist krónan því um 0,3% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en um 0,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan hefur hafði fyrr í dag veikst um 0,5% en styrktist nú undir lok dags.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 168,4 stig en var í gær 167,7 stig.

Gengisvísitalan náði hámarki síðastliðinn miðvikudag þegar opinbert gengi Seðlabankans var 169,2 stig. Á þriðjudaginn náði gengisvísitalan hins vegar hámarki á mörkuðum þegar hún fór um stund yfir 170 stig í fyrsta skipti.

Áður hafði gengisvísitalan náð hámarki þann 24. júní s.l. þegar opinbert gengi Seðlabankans var 168,9 stig.

Krónan hefur nú veikst um 1,6% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. föstudag.

Þá hefur krónan veikst um 27,5% frá áramótum sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi Seðlabankans í byrjun árs.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 89,8 krónum, Evran í 127,2 krónum og Sterlingspundið í 160,6 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 79,2 krónum, japanskt jen í 0,83 krónum og danska krónan í 17 krónum.