Gengisvísitalan er nú 173,5 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis sem er hæsta gildi gengisvísitölunnar frá upphafi.

Þannig hefur krónan því veikst um 1,1% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun og eins frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 172,7 stig, sem er jafnframt hæsta opinbera gengi frá upphafi, en var í gær 171,5 stig sem þá var hæsta opinbera gengið til þessa.

Þetta er þriðja dagurinn í röð sem opinbert gengi nær hámarki. Á miðvikudag fyrir viku var opinbert gengi Seðlabankans 169,2 stig sem var það hæsta til þessa.

Þá var gildi gengisvísitölunnar við lokun markaða í gær einnig það hæsta sem sést hefur, 169,9 stig en gengisvísitalan fór í rúm 171,8 stig innan dags.

Krónan hefur nú veikst um 2,6% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. miðvikudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 93 krónum, Evran í 132 krónum og Sterlingspundið í 166,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 83 krónum, japanskt jen í 0,88 krónum og danska krónan í 17,7  krónum.