Tap af rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar (FLE) nam 1,035 milljörðum á fyrstu sex mánuðum ársins, en hagnaður af rekstrinum nam 318 milljónum króna á sama tíma í fyrra, segir í fréttatilkynningu.

Félagið segir ástæðu taprekstursins vera verulegt gengistap, en stór hluti skulda flugstöðvarinnar er í erlendri mynt.

Hins vegar jukust heildartekjur fyrstu sex mánuði ársins 2006 í 3,042 milljarða, sem er 12% aukning á milli ára, segir í tilkynningunni.

?Fjölgun farþega sem fara um flugstöðina vegur þyngst í aukningu tekna, en þeim hefur fjölgað um rúm 11% fyrstu sex mánuði ársins miðað við árið 2005. Farþegum til og frá landinu hefur fjölgað um rúmlega 16%, en þeir eru helstu viðskiptavinir flugstöðvarinnar," segir í tilkynningu frá félaginu.

FLE Segir að afkoma félagsins eftir skatta sé neikvæð um rúmlega en milljarð, en stór hluti skulda FLE er í erlendri mynt og er gengistap 1,62 milljarðar á tímabilinu. Hluti af þessu hefur komið til baka þar sem gengisvísitala í lok uppgjörstímabils var 134,2 stig en er í dag 122,5 stig, segir FLE

Rekstrargjöld eru um 9% hærri en á sama tíma árið 2005 og hlutfall hagnaðar fyrir afskriftir af rekstrartekjum er nú 32,4% samanborið við 31% fyrir sama tímabil árið 2005.

Hagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði fyrstu sex mánuði ársins nam 986 milljónum króna samanborið við 840 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins 2005. Rekstur hefur verið umfram áætlanir það sem af er þessu ári, þrátt fyrir miklar framkvæmdir sem nú standa yfir í flugstöðinni. Fjárfestingar félagsins á tímabilinu eru rúmlega 2,2 milljarðar.

Eignir félagsins námu í lok júní rúmlega 16 milljörðum og höfðu aukist um 16% frá áramótum. Vegna framkvæmda og óhagstæðrar gengisþróunar hafa langtímaskuldir félagsins vaxið úr úr 6,5 milljörðum um síðustu áramót í 9,6 milljarða í lok júní. Eigið fé nam 4,6 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall var 28%.