Vinna við gröft Bolungarvíkurganga gekk misjafnlega í síðustu viku.

Frá Hnífsdal gekk vel og voru sprengdir 59 metrar og er heildarlengd ganga þeim megin 776 metrar.

Þetta kemur fram á vef Bæjarins Bestu á Ísafirði.

Þar kemur fram að frá Bolungarvík voru hins vegar einungis sprengdir 13 metrar vegna erfiðra jarðfræðiaðstæðna og er heildarlengd þeim megin frá 847 metrar. Samtals er því búið að sprengja 1.623 metrar eða um 31,5% af heildarlengd.