Helstu ljósmyndarar og áhugaljósmyndarar landsins komu saman í Hörpu til að skoða nýjar myndavélar og linsur frá Nikon.
Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson
Deila
Margir af færustu ljósmyndurum landsins voru saman komnir í Hörpu í gær til að skoða og prófa nýjustu græjur frá Nikon. Ástæðan var sú að Nikon var með einskonar kynningarráðstefnu á sínum bestu græjum, í samstarfi við Beco.
Lucas Gilman, einn af færustu ævintýraljósmyndurum og kvikmyndagerðamönnum heims, talaði um hvernig hann framkvæmdi tökur og hvernig viðskiptamódelið sitt væri.
Þá hélt Christopher Lund fyrirlestur um einkaljósmyndunarferðir og vinnusmiðjur sem hann heldur umhverfis Ísland. Hann talaði einnig um hvernig hann sameinaði áhuga sinn á ferðalögum og ljósmyndum
Ljósmyndari Viðskiptablaðsins, Haraldur Guðjónsson, var á staðnum og smellti af myndum: